Fréttir 2014

Kvöldlóa á Heimaey

Kvöldlóa, (Semipalmated Plover – Charadrius semipalmatus) sást á Heimaey 12. júlí og var hún enn á sama stað 14. júlí. Kvöldlóa er náskyld sandlóu (Common Ringed Plover – Charadrius hiaticula) og nauðalík henni. Kvöldlóan er þó sjónarmun minni, svart brjóstbandið er aðeins mjórra, hún hefur þunnan gulan augnhring, hún er ekki með eins áberandi hvíta augnrák aftan við augun, hvíti liturinn nær hærra upp fyrir gogginn sem er aðeins minni og svo hefur kvöldlóan smá fit á milli tánna. Það skal þó tekið fram að erfitt er að sjá mörg þessara einkenna án þess að hafa fuglinn í hendi eða ná af honum myndum.

 

Kvöldlóa á Heimaey

Kvöldlóa er algeng vestanhafs en sárasjaldgæfur flækingur í Evrópu. Þetta er í annað sinn sem hún sést á Íslandi, sú fyrsta fannst í Sandgerði árið 2004. 

 

Kvöldlóa á Heimaey. Á myndinni hér fyrir neðan er mynd af sandlóu til samanburðar.

 

Sandlóa á Heimaey.