Fréttir 2015

“Glöggt er gests augað”

Náttúrustofan fær oft ábendingar um ýmislegt sem ferðamenn sjá og eru ekki sáttir við, bæði hér á Heimaey sem og annars staðar. Nokkrir hafa látið okkur vita um fjölda dauðra kinda í fjörunni við Garðsenda og plast og ull á girðingum á leiðinni upp í Stórhöfða. Starfsmenn stofunnar fóru í höfðann í morgun og tóku meðfylgjandi myndir. 

 

Í fjörunni við Garðsenda sáum við sex dauðar rollur en við fengum fregnir af því að a.m.k. 12 rolluhræ hafi verið þarna fyrr í sumar.

 

 

 

Er þetta sú umgengni sem við viljum sýna þeim þúsundum ferðamanna sem heimsækja okkur þessa dagana?

 

Rúlluplast og ull á gaddavírsgirðingum við veginn upp í Stórhöfða.