Fréttir 2012

Farfuglar – lóan komin til Eyja

Farfuglarnir eru byrjaðir að tínast inn og í gær mátti sjá þrjár heiðlóur ofan við Klaufina. Tjaldur sást fyrst 3. mars, sílamáfur 8. mars og í gær og í dag hefur mátt sjá grágæsir og álftir fljúga yfir Heimaey.

 

Þrjár heiðlóur sáust á Heimaey í gær.

Auk farfuglanna hafa nokkrir æðarkóngar glatt Eyjamenn undanfarnar vikur. Hér hafa verið a.m.k. sex æðarkóngar, tveir kk á fyrsta vetri, tveir kk á öðrum vetri, kvk á fyrst vetri og fullorðinn kvenfugl. Sjá má tvo þessara fugla á myndunum hér fyrir neðan.

 

Æðarkóngur, kvenfugl á fyrsta vetri, í Höfðavík 26. mars. 

 

Æðarkóngur, karlfugl á öðrum vetri, í Vestmannaeyjahöfn 5. mars.