UM OKKUR
Náttúrustofa Suðurlands
Náttúrustofa Suðurlands er rekin af Vestmannaeyjabæ með stuðningi frá ríkinu.
Náttúrustofa Suðurlands var stofnuð í nóvember 1996 og starfar hún samkvæmt lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur (lög nr. 60 frá 1992) og reglugerð um skipulag og starfsemi Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum (reglugerð 643/1995). Náttúrustofan er til húsa í Þekkingarsetri Vestmannaeyja að Ægisgötu 2 í Vestmannaeyjabæ. Hér má sjá samning um rekstur Náttúrustofunnar frá 2008.
Helstu hlutverk Náttúrustofu eru:
- að stunda vísindalegar rannsóknir á náttúru Suðurlands,
- að safna gögnum og varðveita heimildir um náttúrufar og stuðla að almennum náttúrurannsóknum og skal einkum lögð áhersla á Suðurland og sérstöðu náttúrufars á þeim slóðum,
- að stuðla að æskilegri landnýtingu, náttúruvernd og fræðslu um umhverfismál bæði fyrir almenning og í skólum á Suðurlandi,
- að veita Vestmannaeyjabæ og öðrum sveitarfélögum á Suðurlandi umbeðna aðstoð og ráðgjöf, enda komi greiðsla fyrir.
