21.04.2006
Meðfylgjandi frétt er af www.eyjar.net : Lundinn er sestur upp
– Sigurgeir og Tóti stóðu lundavaktina
Lundinn er kominn til Eyja en hann er nokkrum dögum seinna á ferðinni en á síðast ári. Sigurgeir Jónasson og Þórarinn Sigurðsson hafa staðið lundavaktina í Höfðanum. „Já, hann er kominn. Ég fór suðureftir fyrir kvöldmat og þá voru komnir töluverðir flettir suður af Garðsenda og austan við Stórhöfða.